Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 583/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 583/2021

Fimmtudaginn 3. mars 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 4. nóvember 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. nóvember 2021, um að synja umsókn hennar um atvinnuleysibætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. nóvember 2021, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar um atvinnuleysisbætur hefði verið synjað þar sem vinna á ávinnslutímabili bótaréttar næði ekki lágmarksrétti til atvinnuleysistrygginga. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 4. nóvember 2021. Með bréfi, dags. 5. nóvember 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 11. janúar 2022, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því hafi hin kærða ákvörðun verið afturkölluð. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. janúar 2022, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð með erindi úrskurðarnefndar 28. janúar 2022. Svar barst ekki. 

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. nóvember 2021, um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því hafi hin kærða ákvörðun verið afturkölluð. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar en svar barst ekki.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum